Gefðu einstaka upplifun! Gjafabréfin á fjölskyldusöngleikinn Hver vill vera prinsessa? fást hér!
Þrjár prinsessur mætast óvænt og átta sig allar á að þær eru að díla við sama vandamálið. Þær eru að bíða eftir prinsinum sínum. Prinsessurnar geta ómögulega lifað hamingjusamlega til æviloka nema hann komi…..eða hvað?
Óvæntir atburðir henda þeim af stað í ferðalag sem mun breyta lífi þeirra að eilífu en prinsessurnar læra að þeim eru allir vegir færir.
„Hver vill vera prinsessa?“ er nýr söngleikur, eftir Raddbandið og Söru Martí, í anda Disney ævintýranna sem allir þekkja og elska. Sýningin er stútfull af litríkri og töfrandi tónlist eftir Stefán Örn Gunnlaugsson og Rakel Björk Björnsdóttur. Tónlistin er nú öll aðgengileg á helstu streymisveitum.
Raddbandið skipa söng- og leikkonurnar Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir. Þær fara með hlutverk prinsessanna í söngleiknum og Sara Martí leikstýrir, en hún hefur leikstýrt ótal barnaleiksýningum á borð við Karíus og Baktus í Hörpu, Jólaævintýri Þorra og Þuru og síðast Umskiptingnum í Þjóðleikhúsinu.
- „Afbragðsskemmtun fyrir alla fjölskylduna.“ – S.B.H. Morgunblaðið
- „Ég mæli eindregið með þessari sýningu…Bæði börn og fullorðnir skemmta sér við áhorf…Hvert einasta lag er litríkt og fallega sungið, og kómískar tímasetningar leikaranna eru virkilega góðar.“
– Sjöfn Asare, Lestarklefinn, Rás 1 - „Þetta er litrík, falleg og stórskemmtileg sýning með virkilega vel sömdum lögum sem þessar fínu söngkonur syngja af list.“ – Silja Aðalsteinsdóttir, TMM
Sýningin er 50 mínútur að lengd.

Umsagnir
There are no reviews yet